Eðvarð Þór Eðvarðsson margverðlaunaður sundkappi.

Nafn: Eðvarð Þór Eðvarðsson

Aldur: 44 ára.

Við hvað starfar þú? Aðstoðarskólastjóri Holtaskóla og sundþjálfari.

Hvað finnst þér um reykingar? Ömurlegar!

Myndiru segja að reykingar hafi áhrif á íþróttamenn? Heldur betur!

Hefur þú reykt? Asnaðist til þess einu sinni.

Hvað hefur þú að segja fyrir fólk sem reykir ekki? Aldrei að byrja!

Published in: on apríl 28, 2011 at 9:53 am  Rita ummæli  

Elsa Albertsdóttir

Nafn: Elsa Albertsdóttir

Hvað ertu gömul? 11 ára.

Hvað finnst þér um reykingar? Ógeðslegar

Hvernig var það að hitta borgarskotið í Körfubolta? Geðveikt!

Ertu búin að ákveða hvert þú ætlar að fara? Já, ég ætla að fara til Parísar.

Published in: on apríl 27, 2011 at 12:59 pm  Rita ummæli  

Jóhann Geirdal skólastjóri Holtaskóla.

Nafn ? Jóhann Geirdal.

Hvað ertu gamall ? 58 ára gamall.

Hvað finnst þér um reykingar ? Mér finnst bara að þær ætti ekki að vera til.

Myndir þú segja að reykingar hafi áhrif á starfið þitt ? Já, frekar mikil áhrif

Hefur þú einhvern tíman reykt? Jájá.

Fannst þér erfitt að hætta? Já, það fannst mér, það sýnir bara hvað þetta er mikið eitur og þess vegna er betra að byrja aldrei.

Published in: on apríl 27, 2011 at 12:46 pm  Rita ummæli  

Pálína María Gunnlaugsdóttir Íslandsmeistari í körfubolta

Nafn: Pálína María Gunnlaugsdóttir

Hvað ertu gömul? 24. ára

Hvað finnst þér um reykingar? Ég hef allt mitt líf verið á móti reykingum.  Mér hefur alltaf fundist þeir sem geta sleppt því að reykja vera töffarar en hinir sem láta undan þrýstingnum vera kjánar. Reykingar hafa mikil áhrif á heilsu og útlit fólks og finnst mér ekkert eins óheillandi í fari fólks að finna af því reykingarlykt.

Myndir þú segja að reykingar hafa áhrif á íþróttamenn? Reykingar hafa skaðleg áhrif á alla, hvort sem þú ert íþróttamaður eða ekki.  Ég sé ekki hvernig íþróttir og reykingar geta farið saman, þú ert að skemma svo mikið fyrir sjálfum þér með því að reykja, þú munt aldrei ná hámarksárangri með sígarrettu í munninum.  Mér finnst ótrúlega gaman og glæsilegt að sjá flotta íþróttastráka og –stelpur í góðu formi. Ég eiginlega bara elska það.

Við hvað starfar þú? Ég er nemandi í Háskóla Íslands, ásamt því að starfa með fötluðum.

Hefur þú einhvern tímann reykt? Nei.

Published in: on apríl 27, 2011 at 12:41 pm  Rita ummæli  

Ösp Birgisdóttir

Nafn: Ösp Birgisdóttir

Aldur: 40 ára

Hvað finnst þér um reykingar?

Mér finnst þær ógeðslegar

Þú starfar sem skólaritari í Holtaskóla, myndir þú segja að reykingar hafi áhrif á að vinna hér?

Nei, en ég myndi ekki vinna þar sem eitthver reykir.

Published in: on apríl 27, 2011 at 11:03 am  Rita ummæli  
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.